Ađalvalmynd

Könnun

Hef ég (Ívar) breyst mikiđ útlitslega síđustu 3 ár?

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Hćttur ađ blogga í bili

22. nóvember 2008 klukkan 00:31
Já ég er hættur að blogga í bili, nenni þessu aldrei og ég hef svo lítið að segja hvort sem er... sjáumst á djamminu á morgun/í dag laugardag :o) hlakka til að sjá ykkur rúsínur

Jahérna

24. október 2008 klukkan 17:49
Fékk kláðabólu í vinnunni í gær, til að gera það verra var hún á úlniðinum hjá mér. Svo þegar ég vakna í morgun þá var "kláðabólan" orðinn að meiri háttar bólgu. Dröslaðist í vinnuna samt sem áður en svo þegar líða tekur á daginn og ég er að drepast þá ákvað ég nú að troða mér inn í læknatíma uppá Sólvangi.
Tek eftir því uppúr svona 10 að ég er kominn með meiri háttar rauða línu sem liggur frá "kláðabólunni" og upp í handarkrika. Rauð lína þýðir bara eitt... blóðeitrun, sem getur drepið mann ef línan nær í hjartað. Læknirinn stakk á helvítis bólguna og frussaði blóði út en engum greftri. Svo var manni bara gefið rótsterkt penselín í sprautu og sagt að fara að kaupa pensílin í pilluformi líka, svo átti maður að fara heim að leggja sig á meðan mesta kikkið færi í gegnum líkaman.

Endalaust partý hjá mér :(

Flytjum..

18. október 2008 klukkan 20:05
Já nú eru hjúin að fara að flytja. Segjum bless við bílskúrinn og förum í aðeins öðrvísi en vonandi betri íbúð... ættum kannski að íhuga að safna uppí okkar eigin?

Kominn heim

14. október 2008 klukkan 21:18
Grettir er kominn heim. Greyið er sárþjáður og allur skakkur í framan, en okkur sýnist að honum finnist gott að vera komin heim. Það á eftir að taka nokkra mánuði fyrir greyið að hætta að vera svona aumingjalegur og brothættur en að þeim tíma liðnum vonumst við til þess að hann verði aftur heill, bæði líkamlega og andlega

Mikil sorg

13. október 2008 klukkan 22:15
Keyrt á Gretti... Nánar

Hrmmpfh

07. október 2008 klukkan 19:28
Ég hata tannlækna, ekki það að ég hati tannlækninn minn perónulega.. bara sársaukan sem hann veldur. Get samt kennt sjálfum mér um að fara ekki til tannsa í 13 ár..

Move over for the King

03. september 2008 klukkan 12:51


Já þetta er nýji síminn minn, þökk sé mjög veglegri afmælis og jólagjöf frá konunni minni þá eignaðist ég kóng gsm símana, Nokia N95 8GB. Kannski aðeins einn sími sem kemst nálægt þessum síma og það væri Iphone 3G síminn sem virðist ætla að verða ófánlegur nema fólk sé tilbúið í að greiða sem nemur um 100 þús fyrir hann, já eða hafa bandarískt ríkisfang og getur þar af leiðandi gert saming við AT&T.

Það er svona hér um bil allt í þessum síma, eina sem hann hefur ekki sem iphone druslan hefur er snertiskjár en hann virkar og virkar vel sá skjár sem hann hefur og er frekar auðvelt að læra inná hann þrátt fyrir mikið af forritum og skemmtilegheitum. Hann hefur til dæmis gps, ekki það að ég þurfi gps hérna heima... en eins og ég og Árni sýndum og sönnuðum í okkar fyrstu ferð til Koben að þá gertur verið gott að hafa gps við höndina til að finna svona litlar götur eins og... ummmm Strikið *hóst*

Bara smá mont blogg ;)

Hélt ég myndi fá slag...

22. ágúst 2008 klukkan 14:32
fyrir framan sjónvarpið. Greyið kettirnir hlupu út og hafa ekki sést síðan. Geðveikur leikur þrátt fyrir endalaus misnotuð dauðafæri og hefðum við átt að rústa þessum leik með 10-15 marka mun, en spánverjar geta þakkað lélegum hraðaupphlaupum og dómurum fyrir að ekki var tapið stærra....

úff ég er alveg búinn á því.

Í dag er ég bitri gaurinn og er í fýlu út í....

21. ágúst 2008 klukkan 10:07
George Lucas! Var að horfa á Star Wars í gær og fyrradag (the oldies, ekki nýja grenju-væmna-ástarsullið) og veit svo sem að það er búið að bæta fullt af nýjum tölvubrellum inní gömlu myndirnar, svona til að þær lúkki nú aðeins betur út í samanburði við nýja sullið.
Nema hvað, í síðustu myndinni, Return of the Jedi, þá deyr Svarthöfði (úúú hugmyndaflugið sem gaurinn hafði sem þýddi þetta upprunalega) og er líkið brennt á báli, nema hvað að þar sem hann var nú orðinn góður aftur eftir tugi ára sem fúli gaurinn sem drap alla sem gerðu mistök, meira að segja gaurinn sem gaf honum koffínlausa kaffið,  þá átti hann nú að fá sinn heiðurssess hjá Obi-Wan og Yoda. Nema hvað að í nýju og "betrum bættum" útgáfum af myndinni þá í stað gamla mannsins sem við fáum að sjá í grímunni að lokum, þá labbar inn (sem draugur fyrir þá sem eru virkilega ekki búnir að sjá þetta) ekki gamli gaurinn, nei heldur grenjandi, ástarvellandi, smartassið hann Hayden Christensen.

Þannig að greyið gamli gaurinn sem var þekktur sem Darth Vader í mörg ár var bara strokaður út með tölvustrokleðri og þessum líka fávita bætt inn í staðinn. Úff pirringur maður.

Jæja, vonandi hefur pirringur minn ekki smitast yfir í ykkur, þetta er bara rangt. Það er rangt að breyta svona classic myndum. Verra heldur en að vera með ljóshærðan Bond!

Grenjuskjóðan

En til að létta okkar lund og fá brosið aftur upp, hérna eru svo sem 2 fyndnar myndir af frænku minni Hjördísi.

Hjördís Jó

Hjördís

ps. allir að taka þátt í könnun hér til hliðar!

Allt og ekkert, plús myndir

17. ágúst 2008 klukkan 12:21
Keyptum okkur svaðalegan prentara-skanna-ljósritunarvél á föstudaginn. Hann gerir allt nema þrífa og búa til kaffi held ég. Hann getur meira að segja prentað báðum megin á blaðsíðuna... wow :)



The magic prentari


Annars erum við ekkert að bralla nema Telma greyið er að læra á fullu fyrir próf, sem lætur mig fá skemmtilega mikið í magan þar sem allt stefnir í fjarnámsvetur hjá mér núna í vetur. Ef allt fer að óskum mun ég taka 3 fög frá Versló núna í vetur Óákveðinn



Fullt af fullu liði

Rúsínur


Og svo skötuhjúin
Þar til síðar :)

Prófíll

  • Nafn: Ibsen
  • Stađur: Hafnarfjörđur
  • Atvinna: David Hasselhoff wannabe
  • Hjúskaparstađa: Ţriggja bar... uhh ţriggja kvikinda fađir :o)

Videobloggiđ